Æfingar falla niður

Æfingar falla niður föstudaginn 3 sept vegna keppni á Ljósanótt.

Hnefaleikakeppni á Ljósanótt.

Kolli keppir á ljósanótt í Reykjanesbæ, hvetjum alla til að mæta og stiðja strákinn,

hann kemur til með að keppa við Danskan pillt og verður forvitnilegt að sjá hvernig honum gengur.Box á ljósanótt

Æfgingar hafnar að nýju

Æfingar hefjast á ný miðvikudaginn 4 ágúst kl. 19.00 og hvetjum við alla til að mæta og hrista af sér sumarslenið.

Lokun vegna sumarleyfa

Hnefaleikafélag Reykjavíkur mun gera hlé á starfsemi sinni frá föstudeginum 16 júlí til miðvikudagsins 4 ágúst vegna sumarleyfa starfsmanna.

Æfingar munu hefjast aftur miðvikudaginn 4 ágúst.

 

Gleðilegt sumar.

Stjórnin

Breyting á æfingum í sumar

Frá og með 1 júní verða gerðar þær breytingar á æfingum félagsins að það verða eingögu æfingar á Mánudögum, Miðvikudögum og Föstudögum milli kl 19.00 og 20.00

Ljósmyndir frá Íslandsmeistaramótinu á Broadway

Í aðdraganda Íslandsmeistaramótsins ákváðum við hjá HR að semja við ljósmyndarann Arnþór um að taka bæði studiomyndir af einstökum keppendum og síðan að taka myndir á keppniskvöldinu sjálfu. Niðurstaðan er okkur mjög að skapi frábærar myndir, við ættlum síðan í framhaldinu að útbúa ljósmyndabók með myndum frá mótinu og munum við hafa eintak af henni til sínis í afgreiðslunni.

Ég útbjó hérna smá slideshow með örlitlu broti af myndunum og skellti á youtube.

Gunnar Þór hlaut bensabikarinn í annað sinn

Gunnar Þór Þórsson H.R var valinn hnefaleikamaður kvöldsins og hlaut að launum Bensabikarinn í annað sinn á sínum ferli, en hann hlaut hann einnig 2008. Við HRingar óskum honum að sjálfsögðu til hamingju með frábæran árangur.

Gunnar þór þórsson

Frábært Íslandsmeistaramót á Broadway

21 apríl síðastliðinn fór Íslandsmeistaramótið fram á Broadway, húsfyllir var og skapaðist gríðarleg stemmning meðal áhorfenda sem kvöttu keppendur óspart til dáða. Öll umgjörð mótsins var til fyrirmyndar og er greinilegt að húsið hentar mjög vel til keppnishalds.Keppendur mættu einbeittir til leiks og lögðu allt í sölurnar sem skilað sér í því að flestir bardagar voru snarpir og skemmtilegir. HNÍ nefndin á skilið hrós fyrir frábæran undirbúning og skemmtilegt mót. Við HRingar getum verið ánægðir með frábært mót 5 gull og 3 silfur.

íslandsmeisrtaramótið 2010

Íslandsmeistaramótið í kvöld á Broadway

Íslandsmeistaramótið verður haldið á Broadway í kvöld. Húsið opnar kl. 19.00 og hefst mótið síðan kl. 20.00. Miðaverði er stillt í hóf en einungis kostar kr. 1000 inn.Hvetjum við sem flesta til að vera tímanlega í því til að ná sér í sæti á góðum stað. Búið er að setja húsið upp þannig að þetta verður sannkölluð ljónagrifja og eru áhorfendur hvattir til að láta vel í sér heyra. Mun það félag sem er með öflugasta áhorfendahópinn fá bikar í verðlaun ( bestir á bekknum ).

Video frá undanúrslitunum laugardaginn 17 apríl síðastliðinn.

Íslandsmeistaramótið í kvöld á Broadway

Íslandsmeistaramótið verður haldið á Broadway í kvöld. Húsið opnar kl. 19.00 og hefst mótið síðan kl. 20.00. Miðaverði er stillt í hóf en einungis kostar kr. 1000 inn.Hvetjum við sem flesta til að vera tímanlega í því til að ná sér í sæti á góðum stað. Búið er að setja húsið upp þannig að þetta verður sannkölluð ljónagrifja og eru áhorfendur hvattir til að láta vel í sér heyra. Mun það félag sem er með öflugasta áhorfendahópinn fá bikar í verðlaun ( bestir á bekknum )